Tamtron

Leiðir ehf flytja inn vogir frá Tamtron í Finnlandi

Tamtron framleiðir vogir fyrir ýmsar þarfir, m.a. hjólaskóflur, skotbómulyftara, gaffallyftara, handgaffallyftara og krana.

Vogir fyrir hjólaskóflur

wheelloader

Hjólaskófluvogirnar eru alfarið sjálfvirkar. Tækjamaðurinn þarf eingöngu að velja nafn viðskiptavinar, tegund efnis, bílnúmer og/eða verknúmer, allt eftir því hvaða skráningarkröfur eru til staðar hjá viðkomandi notanda. Eftir það þarf tækjamaður ekki að snerta vogina þar til að hann lýkur afgreiðslu með prentun nótu eða vistun afgreiðslu í minni.

Hjólaskófluvogirnar eru í boði í 8 útfærslum; tvennskonar vélbúnaði, PKV og YES og fjórum hugbúnaðar/samskiptaútfærslum, 100, 200, 300R og 300M. Allar vogirnar geta tengst prentara.Tamtron-yes2

PKV-100 og YES-100 hafa eina minnistöflu sem getur verið efnisflokkur, viðskiptavinur eða annað.

PKV-200 og YES-200 hafa átta minnistöflur sem hver getur rúmað viðskiptamenn, efnisflokka (ásamt eðlisþyngd), bílnúmer (ásamt burðargetu), númer aftanívagna (ásamt burðargetu), verknúmer og svo framvegis.

PKV-300R og YES-300R hafa til viðbótar GSM samskiptaeiningu til að senda viktarfærslur á skrifstofuna til reikningagerðar og til frekari úrvinnslu.

PKV-300M og YES-300M hafa minniskort til að vista færslur sem auðvelt er að flytja á skrifstofuna til reikningagerðar og til frekari úrvinnslu.

Hugbúnaður

Forritið PKV32 fylgir PKV vogunum og hefur eftirtalin hlutverk:

  • Forritar minnistöflur, nafn, form á fylgibreytum og fleiru.Tamtron-rpkv200
  • Móttekur gögn frá móðurkerfum í minnistöflur.
  • Sendir gögn í vogir og móttekur vogargögn til baka með GSM sambandi, staðbundnu radíósambandi, minniskorti eða beintengingu.
  • Safnar saman færslum frá vogunum og forvinnur fylgiblöð/færslur fyrir reikningagerð.

Nánari upplýsaingar um vogirnar eru á vefsíðu Tamtron.

Kranavogir

scs1200

Kranavogir frá Tamtron eru gerðar til að hanga niður úr bómu á hlaupaketti. Í boði eru vogir sem ráða við allt frá 500 kg upp í 200 tonn.

Samkvæmt íslensku kaupalögunum þá er skylt að öll sala í lausu máli, þar með talin sala á fyllingarefni, skuli afgreidd samkvæmt löggildu mælitæki. Tamtron vogirnar eru almennt tilbúnar til löggildingar.



Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Vogalausnir » Vogir » Tamtron

Leiðir Verkfræðistofa ehf | Grensásvegi 3 | 108 Reykjavík | Sími: 568 8600 | Fax: 568 8601 | Netfang: leidir@leidir.is