Skráningarstöð
Skráningarstöðvar og skjáir fyrir brúarvogir
VT100 Vigtunar-skráningarstöð

Nýja VT100 skráningarstöðin býður upp á öfluga og notendavæna lausn á vigtarskráningu. Jafnt innandyra sem utan.
VT100 skráningarstöðin nýtist í ótal verkefni t.d. vigtun, skráningu á upplýsingum tengdri vigtun, gagnasöfnun frá öðrum vigtum, aðgangsstjórn og sjálfvirka auðkenningu.
VT100 hefur mjög notendavænt og einfalt viðmót með stórum snertiskjá fyrir skjóta afgreiðslu. Sérstök endurvarpsfilma endurkastar sólargeislanum til að halda skjánum björtum og skýrum í sterkri sól.
Skráningarstöðin er í nýhönnuðum kassa úr glerblásnu ryðfríu stáli. Kassinn er með aðskilda sól og hitavörn, góðan aðgang fyrir skipti á pappírsrúllu. Pappírsrúllan sjálf er mjög stór og getur skilað af sér 2.500 vigtarseðlum.
B8000 Borðskráningarstöð

B8000 Borðskráningarstöðin er einföld og notendavæn, smíðuð úr ryðfríu stáli. Hún er ætluð til staðsetninga sem eru minna krefjandi en VT100 svo sem í verksmiðjusal þar sem hvorki skín sterk sól eða þörf er á prentara.
B8000 er með stóran og skýran snertiskjá ásamt þráðlausum kortalesara og samskiptaeiningu. Skráningarstöðina er einnig hægt að fá í fleiri útgáfum.
VT20

VT20 skráningarstöðin er ætluð til einfaldari skráninga þar sem ekki þarf snertiskjá. Notuð eru gaumljós, rautt og grænt til að gefa notandanum svörun við lestri korts.
Skráningarstöðin er útbúin eftir þörfum með raðtengi, inn og útgöngum þannig að hægt er að nota stöðina í margvísleg verkefni, hvort sem þörf er fyrir skráninga, iðnstýringar eða samskipti við önnur kerfi.
P7000 Umferðarstöð

Umferðarstöðin nýtist í aðgangsstjórn og önnur verkefni/stýringar þar sem auðkennis er krafist. Stöðin er sterkbyggð og auðveld í notkun, hugsanleg verkefni eru:
- Sjálfvirk auðkennis skráning.
- Aðgangs skráning.
- Stýring á dyrum, bómum og hliðum.
- Umferðarleiðbeiningar.
Umferðarstöðin er notuð sjálfstætt eða tengd við PC tölvu, Oftast er hún nýtt sem hluti af stærra kerfi frá Scanvægt.
Stöðin er úr ryðfríu stáli, IP65 og með hitastýringu. Umferðarstöðin getur verið með vigtarskjá, samskiptaskjá, lyklaborði og kortalesara.
Disomat Opus Vigtarhaus

Stórir skjáir RD100 og RD45

Til að lesa af vigtartölur úr fjarlægð eða frá fleiri sjónarhornum er hægt að nota stóran skjá sem tengdur er beint í vigtarhausinn eða við VT7000.
Stórir skjáir frá Scanvægt hafa skýra 45mm eða 100 mm háa LCD-stafi með baklýsingu, sem tryggir greinargóðan aflestur jafnvel í mikilli fjarlægð, hvort sem er í sterkri sól, móti birtu eða í myrkri.
Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Vogalausnir » Vogir » Scanvægt » Skráningarstöð
