Hugbúnaður
ScanX – Vigtarhugbúnaður

ScanX er öflugur Windows hugbúnaður til að skrá vgtanir og utanumhald upplýsinga.
Kerfið uppfyllir ítrustu kröfur um notendavænt viðmót, skráningar og skýrslugerðir. Niðurstaðan er þægilegt hraðvirkt og fjölbreytt forrit. Gagnagrunnurinn er SQL grunnur. Mælt er með MicroSoft MS-SQL server, til að tryggja gagnaöryggi og hraða vinnslu.
ScanX byggir á langri keðju skráninga, byggða á fleiri en einni SQL töflu, Þar sem upplýsingar um ökutæki, vörur, verð og pantanir eru skráðar og geymdar.
ScanX býður meðal annars uppá:
- Reikngingakerfi til gerðar og útskriftar á viðskiptareikningum eða magnreikningum.
- Inn- og útflutningur gagna.
- Ferilskráning, rekjanleiki og samanburður á öllum vigtaunum.
- Útprentun vigtarseðla með laser- eða punktaprentara.
- Útprentun vigtarmiða með miðaprentara.
- Skýrslugjöf lögboðinna sorpflokka (standard skrár ISAG) með möguleika fyrir sjálfvirkri STANDAT skýrslugerð.
- Aðgangsstýring með stjórn á því hverjir fá aðgang að vissum svæðum og skráningar inná svæði.
- Myndbandseftirlitskerfi ásamt kyrrmyndum til vistunar með vigtarskráningum.
- Þróuð og aðsniðin skýrslugerð með mörgum staðalskýrslum ásamt sérsniðnum skýrslum.
ScanXWeb

ScanX_Web er sérhannaður aðgangur fyrir viðskiptavini að ScanX gegnum internetið, með honum fá viðskiptavinir aðgang að eigin vigtarskráningum.
Skilvirkur gagnaflutningur
ScanX_Web tengir saman upplýsingar, safnar upplýsingum frá vigtum á ákveðnu svæði s.s. flokkunarsvæði eða urðunarsvæði – með þeim upplýsingum sem hver og einn hefur þörf fyrir. T.d. skýrslur fyrir opinbera aðila. Einnig getur vef aðgangurinn flýtt fyrir reikningagerð til þriðja aðila.
Skráðu þig inn og sæktu þínar upplýsingar
ScanX_Web vaktar sameiginlegar vigtarskráningar sem eiga sér stað innan tiltekins svæðis. Þegar vigtun er lokið færast upplýsingar yfir á gagnagrunn á netþjóni. Viðskiptavinir geta skráð sig inn á netþjóninn heiman frá sér og sótt eigin vigtarupplýsingar með þeim gögnum sem hann hefur þörf fyrir.
Margvísleg not
Það hefur sýnt sig að ScanX_Web er einnig skilvirkt og árangursríkt tæki fyrir yfirvöld og stjórnunaraðila sem hafa þörf fyrir upplýsingar frá vinnusvæði. Aðilar einfaldlega skrá sig inn í ScanX_Web fá strax aðgang að nýjustu skráningum, bæði um vinnusvæðið og viðskipti.
Aðgangur allan sólahringinn
ScanX_Web er oftast hægt að nota með því vigtarkerfi sem fyrir er á staðnum, þannig er ekki þörf á dýrri fjárfestingu í vigtar eða tölvubúnaði. Það þarf eingöngu að vera internet tenging frá vigtarsvæðinu yfir í ScanX_Web netþjóninn hjá Scanvægt. Viðskiptavinir og aðrir geta þá fengið aðgang allan sólahringinn að upplýsingum, óháð afgreiðslutímum og afkastagetu starfsfólks til að svara fyrirspurnum. “Aðgangsstjóri” á vinnusvæði hefur stjórn á upplýsingaflæði til einstakra viðskiptavina og aðila.
ScanStart

ScanStart er einfaldur, notendavænn Windows hugbúnaður til skráningar og yfirferðar á vigtarskráningum.
Hugbúnaðurinn er einfaldur í notkun og býður upp á að rekja í rauntíma allar vigtarfærslur og birta í skýrslu eða færa yfir til annarra kerfa. ScanStart notar Access-gagnagrunn, sem býður upp á einfalt aðgengi og flutning upplýsinga til annara kerfa.
ScanStart er hægt að nota við:
- Brúarvogarvigtun.
- Vigtun á gólf eða pallvog í tengslum við móttöku og afhendingu á vörum.
- Talningu á einum eða fleirum teljaravogum.
Hugbúnaðurinn er afhentur á geisladisk. Uppsetning er einföld og geta flestir viðskiptavinir framkvæmt hana sjálfir.
Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Vogalausnir » Vogir » Scanvægt » Hugbúnaður
