Uppsetning

Sorpbrennslan Funi á Ísafirði fékk Scanvægt vog ásamt vigtarkerfinu Vigtarverði Sumarið 2008

Hér að neðan má sjá myndir og einfalda lýsingu á því hvernig uppsetning á Scanvægt 6800 brúvog fer fram.

Vogin er framleidd úr forsteyptum einingum sem lagðar eru á sléttað undirlag þannig að ekki er þörf á að steypa undirstöður á staðnum. Vogina má stækka eða flytja án þess að nokkrum verðmætum sé fórnað.

Smellið á myndirnar til þess að stækka þær.

Undirstöður sem bera gólfeiningarnar eru staðsettar með krana

Undirstöður sem bera gólfeiningarnar eru staðsettar með krana.

Gólfeiningarnar brúa síðan bilið á milli undirstöðvanna.

Gólfeiningarnar brúa síðan bilið á milli undirstöðvanna.

Gólfeiningar eru boltaðar saman, kraftnemar settir undir hvert horn og samfestingar milli gólfeininga.

Gólfeiningar eru boltaðar saman, kraftnemar settir undir hvert horn og samfestingar milli gólfeininga.

Kraftnemarnir eru síðan tengdir við vatnsþéttan tengikassa.

Kraftnemarnir eru síðan tengdir við vatnsþéttan tengikassa.

Undir hverjum kraftnema er dempari sem kemur í veg fyrir ójafnt átak og dregur verulega úr sliti.

Undir hverjum kraftnema er dempari sem kemur í veg fyrir ójafnt átak og dregur verulega úr sliti.

Kraftnemar komnir á sinn stað.

Kraftnemar komnir á sinn stað.

Síðan er gengið frá voginni, hér er loki með þéttingum komið fyrir.

Síðan er gengið frá voginni, hér er loki með þéttingum komið fyrir.

Kíttað milli gólfeininga.

Kíttað milli gólfeininga.

Löggilding hefst á hornamælingu. Síðan er vogin fínkvörðuð.

Löggilding hefst á hornamælingu. Síðan er vogin fínkvörðuð.

Kvörðun löggildingarinnar er vistuð í græna tenginu sem tengir vogarpallinn við hausinn. Það tryggir þann sveigjanleika að vogarhausinn má endurnýja án þess að endurnýja þurfi löggildinguna.

Kvörðun löggildingarinnar er vistuð í græna tenginu sem tengir vogarpallinn við hausinn. Það tryggir þann sveigjanleika að vogarhausinn má endurnýja án þess að endurnýja þurfi löggildinguna.

Merkingum er komið fyrir á vogarhaus og vogin er tilbúin.

Merkingum er komið fyrir á vogarhaus og vogin er tilbúin.



Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Vogalausnir » Vogir » Scanvægt » Bílavog » Uppsetning

Leiðir Verkfræðistofa ehf | Grensásvegi 3 | 108 Reykjavík | Sími: 568 8600 | Fax: 568 8601 | Netfang: leidir@leidir.is