Aðgangshlið
Aðgangshlið gerð 29

Skilvirk og áhyggjulaus umferðarstjórnun
Aðgangshlið gerð 29 frá Scanvægt er endingargóður og traustur búnaður fyrir skjóta og örugga stjórn á umferð yfir brúarvogina. Opnun og lokun má bæði stjórna frá vigtarhúsi og frá VT8000 skráningarstöð.
Búnaðurinn er sveigjanlegur, hægt er að staðsetja hliðið hvort sem er fyrir framan eða aftan vogina, eða jafnvel bæði framan og aftan. Þannig má tryggja að aðeins eitt tæki sé á voginni í einu. Hægt er að setja kerfið upp þannig að þau vinni alveg sjálfvirkt og opni fyrir aðgang að voginni úr hvorri átt sem er.
Aðgangshlið gerð 29 er mjög sterkbyggt og með öflugan vélbúnað og er af sömu gerð og notuð er við Stórabeltisbrúnna (milli Sjálands og Fjóns).
Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Vogalausnir » Vogir » Scanvægt » Aðgangshlið
