Gaffalvogir

RWV 2500 gaffalvog3_typ_RWV2500

Vogin er innbyggð í gaffalinn þannig að hún takmarkar ekki lyftigetu lyftarans. Hún hvorki þyngir né truflar stöðugleika lyftarans, þar sem farmurinn færist ekki fjær þyngdarpunkti lyftarans.

Helstu kostir gaffalvogarinnar eru:

  • Vogin kemur löggilt frá framleiðanda og þarf að endurlöggilda á árs fresti. Fyrsta löggilding er þegar ár er liðið frá lokum framleiðsluárs.
  • Vogin er gríðarlega nákvæm, skekkja er innan við ± 0.1% af hámarksvikt.
  • Lyftigeta er að lágmarki 2.500kg með breytilegum aflestri á bilinu 0.5 – 2kg.
  • Stöðluð gaffallengd er 1.150 mm, aðrar lengdir eru fáanlegar.
  • Ísetning felst í að skipt er um gaffla, enga sérstaka breytingu þarf að gera á lyftara.
  • Skjá má staðsetja hjá ökumanni eða á gaffli.
  • Ef snúningsbúnaður er á lyftara þá má snúa göfflunum 120° til hvorrar hliðar. Ef ekki verður farið eftir því þá getur skemmst stuttur kapalbútur á milli snúningabúnaðar og gaffals.
  • Meðal aukahluta má fá prentara, samskiptatengi, þráðlausan sendi og skynjara sem leiðréttir viktun í halla.

Hægt er að fá gaflana málaða, heithúðaða eða ryðfría.

RCS Vökvavogrcs-indicator

Vogin er tengd inn á vökvakerfi lyftarans og mælir vökvaþrýsting á lyftitjakk, og er því ódýr og einstaklega einföld í uppsetningu.

  • Vogin er fáanleg með 2.500 kg, 5.000 kg og 10.000 kg lyftigetu.
  • Nákvæmni: ± 2% af heildarlyftigetu vogarinnar.
  • Vogin gengur fyrir 4 AA rafhlöðum.
  • Ísetning á staðnum er auðveld.
  • Sjálfvirk törun og handvirk innsetning á törunarvigt.
  • Sjálfvirk og handvirk núllstilling.
  • Meðal fáanlegra aukahluta eru 12 VDC tengi við rafkerfi lyftarans, spennubreytar, og hita- eða nálaprentarar.

RCS Plus Vökvavog

Vogin virkar eins og RCS vogin að því viðbættu að sjálfvirk stýring er á vigtun sem gefur tífalt meiri nákvæmni eða ± 0,2% af heildarlyftigetu vogar.

RCS lyftaravog í notkun hjá Rekstrarvörum

RCS lyftaravog í notkun hjá Rekstrarvörum



Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Vogalausnir » Vogir » RAVAS » Gaffalvogir

Leiðir Verkfræðistofa ehf | Grensásvegi 3 | 108 Reykjavík | Sími: 568 8600 | Fax: 568 8601 | Netfang: leidir@leidir.is