VigtarVörður

Vigtarkerfi fyrir bílavogir

VigtarVörður frá Leiðum ehf er hugbúnaður fyrir PC tölvu með Windows stýrikerfi sem tengist við bílvog. Kerfið byggir á MS Access 2000/XP gagnagrunni frá Microsoft.

  • Virkni kerfisins byggir á því að lesa þyngd bíls af bílvog þegar hann kemur inn á afgreiðslusvæði.
  • Skrásett er m.a. hver greiðir fyrir farminn, hver er flytjandi, hvaða tegund farms um er að ræða, þyngd og tími innvigtunar bíls.
  • Á útleið bætist við þyngd bíls og tími útvigtunar.
  • Reiknuð er þyngd farms sem mismunur milli inn- og útvigtunar og gjald fyrir farminn út frá skráðum taxta í efnisflokkaskrá.
  • Skráning fer annað hvort fram á skjá PC-tölvu eða með því að bera örmerki upp að örmerkjalesurum sem staðsettir eru við bílavogina.
  • VigtarVörður Leiða ehf hefur þegar verið tekið í notkun hjá Sorpurðun Vesturlands hf, Sorpsamlagi Þingeyinga, Gámu Akranesi, Vatnsskarðsnámum og Sorpendurvinnslunni Funa, Ísafirði.

Auðvelt er að laga vigtarkerfið að mismunandi kröfum og aðstæðum. Gagnauppbygging er einföld og augljós þeim sem hafa einhverja þekkingu á gerð fyrirspurna (SQL Query) í MS Access. Fyrir aðra má með litlum tilkostnaði sérsmíða fyrirspurnir þannig að þær verði hluti af kerfi viðkomandi fyrirtækis sem notandi hefur alltaf aðgang að. Sem dæmi má nefna að mörg bókhaldskerfi geta lesið inn gögn ýmist á textaformi eða t.d. MS Excel formi. Gögn úr MS Access er handhægt að flytja yfir á mörg önnur gagnaform sem sérsníða má að kröfum viðskiptamannabókhalds margra bókhaldskerfa.

image002

Hér er PDF skjal með nákvæmri lýsingu á notkun VigtarVarðar



Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Vogalausnir » Vogakerfi » VigtarVörður

Leiðir Verkfræðistofa ehf | Grensásvegi 3 | 108 Reykjavík | Sími: 568 8600 | Fax: 568 8601 | Netfang: leidir@leidir.is