Snertivigtun

Sjálfsafgreiðslu vigtarkerfi fyrir bílvogir

Snertivigtun frá Leiðum ehf er viðbót við vigtarkerfið Vigtarvörð.

  • Snertivigtun gerir sjálfsafgreiðslu mögulega með snertiskjá-skráningastöðvum á vog.
  • Virkni kerfisins byggir á því að bílstjóri skráir sig sjálfur inn og út af svæði þegar ekið er yfir bílvog.
  • Bílstjóri skráir á snertiskjá hver greiðir fyrir farminn, hver er flytjandi, hvaða tegund farms er um að ræða ofl. Kerfið bætir síðan við þyngd og tíma innvigtunar bíls.
  • Á útleið bætist síðan við þyngd bíls og tími útvigtunar.
  • Reiknuð er þyngd farms sem mismunur milli inn- og útvigtunar og gjald fyrir farminn út frá skráðum taxta í efnisflokkaskrá.
  • Hægt er að vinna með efnisflutning inn eða út af svæði eða hvorttveggja í einu.
  • Bíla í föstum viðskiptum þarf ekki að núllvigta (tara) í hverri ferð sem flýtir verulega fyrir.
  • Skráning fer fram á snertiskjá við bílgluggann svo bílstjóri þarf ekki að yfirgefa sætið. Ef vandamál koma upp getur afgreiðslumaður yfirtekið skráninguna og/eða leiðbeint með kallkerfi.
  • Hægt er að tengja Snertivigtun við öll helstu lager og bókhaldskerfi.
  • Snertivigtun er í fullri notkun hjá Hlaðbæ-Colas, stærsta malbiksframleiðanda landsins.

Dæmi um notkun Snertivigtunar: Hlaðbær-Colas

Hlaðbær-Colas, stærsti malbiksframleiðandi Íslands, notar Snertivigtunarkerfi frá Leiðum. Kerfið hefur verið sniðið að þeirra þörfum og er í fullri virkni.

Hér fyrir neðan má sjá virkni kerfisins.
Eftirfarandi myndband gefur stutta kynningu á kerfinu hjá Hlaðbæ-Colas:

Eftirfarandi myndband sýnir dæmi um innskráningu hjá Hlaðbæ-Colas:

Eftirfarandi myndband sýnir dæmi um útskráningu hjá Hlaðbæ-Colas:

Eftirfarandi myndband sýnir dæmi um notkun á kallkerfið hjá Hlaðbæ-Colas. Kallkerfið er notað til að aðstoða bílstjóra við skráningarferlið.

Vélbúnaður

  • Snertiskjár í stálkassa með hljóðnema, hátalara og örmerkjalesara eru settir upp við hvorn enda vogarinnar.
  • Inni í öðrum stálkassanum (skráningarstöðinni) er PC tölva með Windows stýrikerfi sem keyrir Snertivigtun hugbúnaðinn. Einnig er magnarabúnaður fyrir kallkerfi staðsettur í stálkassanum.
  • Valmöguleiki er að setja upp myndavélar við sitt hvorn enda vogarinnar til að taka myndir af bíl, númeraplötu, farmi eða bílstjóra, sem er vistað með skráningunni.

Hugbúnaður

  • Snertivigtun, sem er viðbót við Vigtarvörð, er hugbúnaður fyrir PC tölvu með Windows stýrikerfi sem tengist við bílvog og birtir skjámyndir á snertiskjánum. Kerfið byggir á Access gagnagrunni frá Microsoft.
  • Tight VNC fjarstjórnarhugbúnaður er settur upp á þeim tölvum sem við á. Með honum er hægt að fylgjast með, aðstoða og taka yfir stjórn á skráningarstöðvunum úr hvaða tölvu sem er.
  • Stjórnforrit er sett upp á sömu tölvu til að opna og loka fyrir hljóðnema, sem og að sýna myndskeið frá myndavélum ef þær eru til staðar.

Hér er PDF skjal með nákvæmri lýsingu á notkun kerfisins



Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Vogalausnir » Vogakerfi » Snertivigtun

Leiðir Verkfræðistofa ehf | Grensásvegi 3 | 108 Reykjavík | Sími: 568 8600 | Fax: 568 8601 | Netfang: leidir@leidir.is