Hlaðbær-Colas
Snertivigtun hjá Hlaðbæ-Colas
Eftirfarandi myndasýning sýnir uppbyggingu Snertivigtunar hjá Hlaðbæ-Colas:
Flýtileiðir
- - Skráning bíla í Snertivigtun
- - Útgáfa örmerkjakorts
- - Törunarferli
- - Innskráning
- - Útskráning
- - Kallkerfi og myndavélakerfi
- - SMS skilaboð
Inngangur
Haustið 2008 fól Hlaðbær Colas Leiðum ehf það verkefni að setja upp nýtt vigtarskráningarkerfi. Í kjölfar greiningar var ákveðið að við hvorn enda vigtarinnar yrðu stólpar með snertiskjá, kortalesara, hátalara, hljóðnema og myndavél.
Leiðir hafa afhent Hlaðbæ-Colas fyrsta eintakið af nýja vigtarskráningarkerfinu Snertivigtun sem hefur verið klæðskerasniðið að þeirra þörfum.
Með skráningarkerfinu geta starfsmenn og viðskiptavinir nú afgreitt sig sjálfir inn og út af plani Hlaðbæ-Colas við Gullhellu í Hafnarfirði. Færslur með ljósmyndum af bílnum eru færðar í birgða og bókhaldskerfið Navision með upplýsingum um bíl, verk, efni, þyngd, inn/út og tíma. Með Snertivigtun fylgir fullkomið myndavéla- og kallkerfi, sem gerir starfsfólki á skrifstofu kleyft að fylgjast vel með og leysa úr vandamálum án þess að bílstjórar þurfi að yfirgefa bílinn.
Skráning bíla í Snertivigtun
Allir bílar sem fara með efni út eða inn af svæði Hlaðbæ-Colas þurfa að vera skráðir inn í kerfið með uppgefna tómaþyngd. Skráning á tómaþyngd er kölluð törun og er hún framkvæmd áður en bíll fer í sína fyrstu ferð með efni út eða inn af svæði Hlaðbæ-Colas.
Útgáfa örmerkjakorts
Bílar eru auðkenndir í Snertivigtun með svokölluðum örmerkjakortum. Þegar bíll ætlar að hefja akstur fyrir Hlaðbæ-Colas þarf að skrá hann inn í gagnagrunn kerfisins þar sem fram kemur fastanúmer bíls, hvaða fyrirtæki hann tilheyrir, hver er skráður bílstjóri o.s.frv. Fyrir viðkomandi bíl er svo gefið út örmerkjakort og er það gert með tilgerðum örmerkjakortaprentara sem er staðsettur í móttökunni í Hlaðbæ-Colas. Númer viðkomandi örmerkjakorts verður hluti af skráðum upplýsingum fyrir bílinn. Bílstjórinn tekur örmerkjakortið og geymir það í bílnum.
Törunarferli
Törun er framkvæmd með því að bíll keyrir inn á vog og stöðvar við snertiskjá við enda vogarinnar. Bílstjórinn ber örmerkjakortið upp að örmerkjalesara sem er staðsettur fyrir neðan snertiskjá kerfisins eins og eftirfarandi myndskeið sýnir.

Kerfið sýnir vigt bíls og er tilbúið fyrir skráningu. Ökumaður ber örmerkjakortið að örmerkjalesaranum og þá birtist eftirfarandi skjámynd:
Bílstjóri styður á Tómur takkann til að skrá tómaþyngd bílsins, þ.e. til að tara bílinn.
Í þessu tilfelli er tómaþungi bílsins 32,00 tonn. Törun er lokið og bíll keyrir af vog. Ef tómaþyngd bíla breytist þurfa þeir að endurtaka törunina til að hlassþungi skráist rétt.
Innskráning
Innskráning er þegar bílar koma með farm inn á svæði til vinnslu. Þyngd bíls og farms er skráð og þyngd farms er reiknuð út með því að draga tómaþyngd bílsins frá.Eftirfarandi myndskeið sýnir dæmi um innskráningarferli bíls hjá Hlaðbæ-Colas.
Eftirfarandi myndskeið sýnir dæmi um innskráningu með Snertivigtunarkerfi Hlaðbæ-Colas:
Bíll keyrir inn á vog og stöðvar við skráningarstöðina. Kerfið sýnir þá þyngd bíls og bíður eftir að bílstjóri beri örmerkjakort að örmerkjalesara sem er staðsettur fyrir neðan snertiskjáinn.
Við lestur á örmerkjakortinu veit kerfið um hvaða bíl er að ræða og hvaða fyrirtæki hann er að keyra fyrir. Þetta er sýnt á snertiskjánum með AP-270 Loftorka Rvk. Ef örmerki kortsins er ekki á skrá þá birtist textinn Örmerki er ekki skráð eða þar til að örmerki er lesið á ný.
Hér velur bílstjórinn að hann sé að fara inn á svæðið og þá birtist eftirfarandi skjámynd þar sem bílstjóri tilgreinir hvaðan hann er að koma með efni.
Bílstjóri velur svo að staðfesta viðkomandi skráningu, hafna henni eða velja nýjan flokk. Bílstjóri fær einnig upplýsingar um þyngd farmsins.
Skráningu er lokið og bíll ekur af voginni.
Þegar þyngd á vog fer undir 120 kg birtist upphafsskjámyndin á ný og næsti bíll getur keyrt inn á vogina til skráningar.
Útskráning
Útskráning er þegar bílar fara með farm út af svæði til malbikunar. Eins og í innskráningarferlinu þá er þyngd bíls og farms skráð og þyngd farms er reiknuð út með því að draga frá tómaþyngd bílsins. Eftirfarandi myndskeið sýnir dæmi um útskráningarferli bíls hjá Hlaðbæ-Colas:
Bíll keyrir inn á vog og stöðvar við skráningarstöðina. Kerfið sýnir þyngd bíls og bíður eftir að bílstjóri beri örmerkjakort að örmerkjalesara sem er staðsettur fyrir neðan snertiskjáinn.
Við lestur á örmerkjakortinu veit kerfið um hvaða bíl er að ræða og hvaða fyrirtæki hann er að keyra fyrir. Þetta er sýnt á snertiskjánum með AP-270 Loftorka Rvk.
Hér velur bílstjórinn að hann sé að fara út á svæðið og þá byrtist eftirfarandi skjámynd þar sem bílstjóri tilgreinir hvert hann er að fara með malbikunarefni. Það getur átt við annaðhvort fyrirtæki eða malbikunarverkstjóra.
Valinn er efnisflokkur:
Bílstjóri fær upplýsingar um þyngd farmsins. Hann hefur val um að staðfesta viðkomandi skráningu, hafna henni eða velja nýjan flokk.
Skráningu er nú lokið og bíllinn ekur af voginni.
Kallkerfi og myndavélakerfi
Kall- og myndavélakerfi er til staðar í Hlaðbæ-Colas til að vaktmaður geti aðstoðað bílstjóra á vog frá skrifstofunni. Vaktmaður getur einnig tekið yfir skráninguna hjá bílstjóranum og framkvæmt skráninguna fyrir hann. Eftirfarandi myndskeið sýnir dæmi um samskipti í gegnum kallkerfið:
Myndavélar eru staðsettar við báðar skráningarstöðvarnar á sitthvorum enda vogarinnar. Hlutverk myndavélanna er annars vegar að sýna vaktmanni á skrifstofu að sjá rauntímamyndskeið af bíl sem er á vog og hins vegar að taka kyrrmyndir af bíl og númeraplötu hans til að auðkenna bíla enn frekar ef einhver vafaatriði koma upp.
SMS skilaboð
Snertivigtunarkerfið sendir SMS skilaboð við útskráningu til þeirra malbikunarverkstjóra sem bílstjóri velur að keyra efni til. Þetta auðveldar verkstjórum að vera tilbúnir að taka á móti bílum þegar þeir koma á malbikunarsvæðið.
Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Vogalausnir » Vogakerfi » Sérsniðnar lausnir » Hlaðbær-Colas
