Flokkaskráning
Leiðir hefur þróað vöru fyrir Sorpu BS til að framkvæma flokkaskráningu bíla á fljótlegan hátt. Starfsfólk Sorpu í móttökukstöð skrá bíla í ákveðinn flokk miðað við hvers konar sorp þeir eru með. Eftirfarandi myndband sýnir í stórum dráttum hvernig lausnin er útfærð hjá Sorpu með hjálp snertiskjás. Á myndbandinu sést hvernig starfsmenn lesa örmerkjakort bílstjórans til að auðkenna fyrir hvaða bíl er verið að skrá flokk fyrir. Starfsmaður skráir svo starfsmannanúmer sitt og svo í hvaða flokk hann á að fara.
Eftirfarandi myndband sýnir svo dæmi um ódýrari útfærslu á flokkaskráningunni þar sem skráningarstöð með talnaborði er valin í stað snertiskjás. Starfsmaður fylgist með stöðu skráningarinnar á textaskjá staðsettum fyrir ofan skráningarstöðina.
Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Vogalausnir » Vogakerfi » Sérsniðnar lausnir » Flokkaskráning
