Bílavog

Brovaegt

Ný viðmið í endingu

Vogirnar eru úrval burðarmikilla og endingargóðra brúarvoga úr steinsteypu. Vogirnar þola nánast hvað sem er og krefjast lágmarks viðhalds.

Brúarvogirnar eru byggðar upp með einingum sem settar eru saman í 6 m – 24 m lengju. Vogirnar samanstanda af tveim megin gerðum; sjálfstætt standandi vog og niðurgrafinni vog.

Niðurgrafna vogin státar af sérstaklega lágri eiginhæð sem gerir dýpt holu einungis 370 mm. Það felur í sér minni gröft, fljótlegri uppsetningu og færri vandamál vegna jarðvegs.

Báðar gerðir hafa burðarþol frá 20 tonnum.

Sterk steypa

Brúarvog 6800 frá Scanvægt er framleidd úr gegnheilli gæða steinsteypu sem er sérhönnuð til að vera slitsterk. Brúarvogirnar eru yfirfarnar af óháðum verkfræðistofum til að tryggja að vogirnar standist kröfur Danskra yfirvalda um byggingu og burðarþol og endingu hefbundinna umferðarbrúa í Danmörku.

Brúarvogin er byggð upp með einingum sem samanstanda af forframleiddum brúargólfum og forframleiddum brúarstöplum. Milli eininganna eru kraftnemar með einstaklega vel útfærðum festingum. Saman gerir þetta vogina að traustri og endingargóðri vöru.

Einingakerfið gerir einnig mögulegt að eldri 6800 brúvog er hægt að lengja – t.d. er hægt að lengja 12 metra vog upp í 18 metra eða jafnvel 24 metra. Bæði brúargólf og stöpla er einfalt að flytja gerist þörf á að koma voginni fyrir á nýjum stað.

6800 línuna er einnig hægt að fá með römpum. Þannig er hægt að staðsetja vogina ,,ofanjarðar” með hæð upp að vog u.þ.b. 300 mm.

Einnig er hægt að staðsetja vogina í takmörkuðum halla án þess að það hafi áhrif á vigtarnákvæmni.

Rekstraröryggi og einfalt viðhald

Eftirlit með kraftnemum er einfalt þar sem þeir og allir tilheyrandi þættir eru aðgengilegir ofan frá. Staðsetning kraftnemanna gerir vogina mjög gangörugga í samanburði við hefðbundnar bílavogir. Þrif undir vognni er einnig leikur einn.

Hægt er að fá vogirnar með hitaleiðslum sem draga úr þörf á snjóhreinsun, ásamt lúgum sem veita aðgang niður í gryfju ef vogin er niðurgrafin.

Forframleiddar undirstöður / stöplar

prefab_beton

Scanvægt Nordic hefur þróað einstaka lausn með forframleiddum steypustöplum sem tryggja fljótlega og einfalda uppsetningu á heildarvigtarlausn. Miðað er við að brúarvog sé tilbúin til notkunar á innan við einum degi. Myndasýning af uppsetningu Scanvægt vogar á Ísafirði lýsir því vel hversu einfalt of fljótlegt ferlið er.

Brúarvogina er hægt að fá afhenta með stöplum fyrir frístandandi vog eða niðurgrafna í gryfju. Einingarnar eru forsteyptar og innihalda endastöpla, hliðarbjálka og miðjustöpla.

Brúarvog að stærð 12 x 3 m, t.d. sem staðsetja skal sjálfstætt standandi ofanjarðar þarf tvo endastöpla ásamt miðjustöpli. Ef vigtin skal vera niðurgrafin í gryfju er hún afgreidd með fjórum hliðarbjálkum sem festir eru við enda og miðju stöplana.

Kraftnemar

vejeceller

Hjarta brúvogarinnar – kraftnemarnir – eru heill kafli útaf fyrir sig og eru frábrugðnir öðrum kraftnemum að því leiti að vera minni um sig en samt nákvæmari og sterkari.

Hin einstaka uppbygging kraftnemans, sem Scanvægt er með einkaleyfi fyrir, færir burðinn beint í gegnum kraftnemann sem skilar sér þar af leiðandi í fljótlegri og nákvæmari mælingu. Þessi einstaka bygging kraftnemans kemur í veg fyrir ójafnt átak í kraftnemann og dregur verulega úr sliti. Útkoman er lengri líftími og lægri viðhaldskostnaður.

Kraftnemarnir eru með vigtargetu frá 100 kg og allt að 470 tonnum. Skerðingar eru 3.000, 4.000, 5.000 eða 7.500. Kraftnemarnir eru framleiddir úr ryðfríu stáli með þéttleika IP68.



Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Vogalausnir » Vogakerfi » Scanvægt » Bílavog

Leiðir Verkfræðistofa ehf | Grensásvegi 3 | 108 Reykjavík | Sími: 568 8600 | Fax: 568 8601 | Netfang: leidir@leidir.is