Scanvægt

Leiðir bjóða úrval skráningarlausna frá Scanvægt

Bílavogir frá Scanvægt byggja á sterkum grunni áratuga reynslu. Vörulínan samanstendur af vogum, skránningartækjum og hugbúnaðarlausnum.

Bílavogirnar frá Scanvægt er fullkomin lausn án takmörkunar. Allar einingarnar – bílavogir, skráningarstöðvar, skjáir og vigtarkraftnemar eru sér í lagi sveigjanlegar og hægt er að flétta inn í þann búnað sem notandinn hefur þegar í notkun til að endurbæta án þess að umbylta öllu.

Hugbúnaðareiningar má tengja við ýmiss bókhalds, viðskipta og skráningarkerfi og miðla upplýsingum með nettengingum, interneti eða öðrum miðlum.

Bílvogir

BrovaegtSM

Vogirnar eru byggðar upp af steinsteypueiningum sem lagðar eru á slétt land og er því ekki þörf á að steypa
undirstöður á staðnum.

Skráningarstöð

VT100_SM

Útstöðvarnar hafa snertiskjá sem gera þær mjög notendavænar. Leiðbeiningar vísa notendum áfram.

Hugbúnaður

SW_SM

Forritið Scan-X nýtir sjálfvirka skráningu til að tengja saman viðskiptavin, farm, viktun, verðskrár og prenta viktarseðla. Einnig stýrir það hliðum sem veita aðgang að svæðum, vista myndir úr eftirlitsmyndavélum og tengir þetta allt saman.

Sjálfvirk skráning

IRID_SM

Einföld, fljótleg og örugg leið til að skrá með sjálfvirkni númer ökutækis eða vagna sem fer um svæðið, yfir vigtina eða gegnum hliðið.

Aðgangshlið

Trafik_SM

Eftirlitskerfi

Kamera_428_SM

Einfaldar og notendavænar myndavélar aðstoða við skráningu með því að sýna mynd framan á bíl eða ofaná farm. Scan-X forritið geymir svo myndirnar með skráningarfærslum. Eykur öryggi og flýtir fyrir afgreiðslu.



Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Vogalausnir » Vogakerfi » Scanvægt

Leiðir Verkfræðistofa ehf | Grensásvegi 3 | 108 Reykjavík | Sími: 568 8600 | Fax: 568 8601 | Netfang: leidir@leidir.is