Snertiskjátölva
Leiðir framleiða snertiskjátölvur fyrir blautt umhverfi sem henta mjög vel inn í fiskvinnslusali og rými þar sem þvo þarf tækin daglega. Einnig henta tölvurnar vel fyrir bíla- og farartækjaísetningar vegna þess hve nettar þær eru.
Skjárinn
Skjárinn er 12.1″ litaskjár og hefur 768 x 1024 punkta upplausn. Húsið utanum skjáinn er fræst úr plasti, hvítt PET þar sem skjárinn þarf að vera í beinni snertingu við matvæli, annars svart PVC. Bakið er úr glerblásnu ryðfríu stáli og fullkomnar þéttingar sem gera skjáinn fullkomnlega þéttan. Þykkt skjásins er aðeins 22mm.
Tölvan
Tölvan er búin örgjörva sem hefur afar lága straumþörf og má því koma fyrir í vatnsþéttum rafmagnsskáp.
Gerð 501 er útbúin með VIA Eden 600MHz örgjörva, 256MHz innra minni, 2 raðtengjum, 1 USB 1.1 tengi, 10/100Mbit Ethernet tengi, VGA skjátengi, lykilborðs- og músartengi. Tölvan er búin 20Gb harðdisk og afgreidd með Windows XP eða öðru valfrjálsu stýrikerfi.
Myndin hér til hliðar sýnir snertisjátölvuna í færanlegri vogarstöð í saltfiskpökkun. Vogin er framleidd af Marel, en ásamt henni er notaður Intermec prentari í prentarakassa og stálgrind frá 3-X Stál á Ísafirði.

Snertiskjár í lyftara á Sjávarútvegssýningunni 2005. Tækið hægra megin við skjáinn er vogarskjár á löggiltri RAVAS gaffalvog. Smelltu á myndina til að stækka hana.
Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Tölvur og skjáir » Snertiskjátölva
