eBox smátölvur

EBOX3-on-hand

Minnstu tölvurnar sem hægt er að fá í bílaísetningar eru eBOX örtölvurnar en þær eru án hluta sem hreyfast. Þykkar hliðar úr áli geisla út hita og gera viftu óþarfa. Harðdiskurinn er einnig óþarfur þar sem gögnin eru vistuð á hálfleiðaradisk sem er ónæmur fyrir titring, höggum og óhreinindum. Hálfleiðaradiskurinn er fáanlegur í stærðum frá 64Mb í 4Gb. Einnig er hægt að fá hefðbundna fartölvuharðdiska. eBox smátölvurnar eru nettar og hljóðlátar en þrælöflugar og henta vel í sérhæfð verkefni, sérstaklega þar sem pláss er af skornum skammti.

Hafið samband við sölumenn fyrir nánari upplýsingar um verð og framboð!

PDF skjal með nánari upplýsingum um eBox tölvurnar



Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Tölvur og skjáir » Bíltölvur » eBox smátölvur

Leiðir Verkfræðistofa ehf | Grensásvegi 3 | 108 Reykjavík | Sími: 568 8600 | Fax: 568 8601 | Netfang: leidir@leidir.is