Navara flökkuskráning

Leiðir ehf bjóða búnað til flökkuskráningar.

Þar er um að ræða:

  • Navara skráningarkerfi.
  • Bílatölvur með snertiskjáum.
  • Handtölvur.
  • Snjallsíma.

Skráningarkerfið

Navara skráningarkerfið brúar saman öll venjuleg upplýsingakerfi yfir í allar helstu gerðir tölva sem ekki hafa fasttengt netsamband. Allt frá tölvusímum (Snjallsímar, smartphones með Windows Mobile 5.0) til borðtölva (með Windows XP). Fjögur verkfæri (Adapters) eru notuð til að tengjast upplýsingakerfum. Hjartað í Navara kerfinu er Navara miðlarinn miðlar skýrslum (calls) til skráningartækjanna.

Skrár eru skilgreindar sem t.d. geta verið verkbeiðnir. Skráningarmyndir eru hannaðar sem styðjast við skrárnar, ein mynd fyrir hverja gerð skráningartækis sem hafa misjafnar skjástærðir. Skráningarfærslur eru síðan sendar í skráningartækin. Myndir geta fylgt sem viðhengi. Sítenging er ekki nauðsynleg. Til dæmis getur færslan verið verkbeiðni að sækja pakka á tiltekið heimilisfang. Um leið og skráning berst til miðlarans þess efnis að pakkinn sé sóttur þá innkallar Navara miðlarinn sömu tilkynningu frá öllum öðrum skráningartölvunum. Hægt er að skrifa undirskrift á skjá (ef um snertiskjá er a ræða, Signature Capture).

Slide20

Yfirlit yfir Navara skráningarkerfið. Smelltu á myndina til að stækka hana!

Introducing NMS

Navara hönnunarverkfæri. Smelltu á myndina til að stækka hana!



Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Navara flökkuskráning

Leiðir ehf | Síðumúla 14 | 108 Reykjavík | Sími: 568 8600 | Fax: 568 8601 | Netfang: leidir@leidir.is