Kortalausnir

Félagasamtaka,- fyrirtækja- og starfsmannakort

Leiðir ehf. bjóða upp á ýmsar útfærslur af kortum og kortalesurum og leggur metnað sinn í að prentun á kortin sé í hæsta gæðaflokki.
Í boði eru lausnir sem snúa að:

    • aðgangi að vinnustöðum, orlofshúsum, hótelherbergjum
    • tengingu við tímaskráningarkerfi
    • starfsmannakort með mynd af starfsmanni.
    • starfsmannakort með mynd af starfsmanni ásamt segulrönd, örflögu eða örmerki.
    • félagsskírteini með mynd félagsins og félagans.
    • félagasskírteini með því útliti sem félagið kýs að hafa ásamt segulrönd, örflögu eða örmerki.
    • inneignarkort/rafræn gjafakort með mynd fyrirtækis ásamt segulrönd, örflögu eða örmerki.
      • inneignarkortin eru tilvalin til að nýta sem gjafakort, eða þegar vörum er skilað og inneign myndast þar af leiðandi en þau kort eru nú þegar komin í notkun hjá Sorpu þegar viðskiptavinir hafa ekki debetkort en vilja gjarnan fá inneign sína vegna flösku og dósaskila endurgreidda, þá nýtast inneignarkortin vel.
    • nafnspjöld fyrir þá sem vilja skilja eftir sig kort með meiri glæsibrag en pappírsspjöldin.
    • gestakort með mynd fyrirtækisins.
    • verktakakort með mynd fyrirtækisins, sérstaklega hugsuð fyrir þá sem hafa verktaka í vinnu sem þurfa að geta haft aðgengi að fyrirtækinu jafnt innan sem utan hefðbundins vinnutíma.

    Kortalausnir Leiða ehf.

    Sýnishorn af kortum

  • Við bjóðum einnig upp á kortalesara af ýmsu tagi til að nota með kortunum.

    Ykkur er velkomið að óska eftir tilboði og fá nánari upplýsingar með því að senda okkur póst á leidir@leidir.is eða hringja í síma 568 8600.



Þú ert hér: Forsíða » Vörur » Kortalausnir

Leiðir Verkfræðistofa ehf | Grensásvegi 3 | 108 Reykjavík | Sími: 568 8600 | Fax: 568 8601 | Netfang: leidir@leidir.is