iButton skráningarstöðvar
Leiðir bjóða iButton skráningarstöðvar.
Leiðir ehf bjóða skráningarstöðvar fyrir iButton-auðkennishnappa sem eru víða notaðir til auðkenningar í aðgangsstýrikerfum, innbrotaviðvörunarkerfum, tímaskráningarkerfum ofl. Skráningarstöðvarnar hafa samskipti á hefðbundnu tölvuneti við miðlægan gagnaþjón sem heldur utan um skráningar og stýrir aðgangsheimildum. Einnig er hægt að tengja skráningarstöðvarnar við önnur kerfi í gegnum vefþjónustur, TCP/UDP skeytasendingar ofl.
Skráningarstöðin er fullfær um að stýra jaðarbúnaði, s.s. hurðum sem þarf að opna, ljósum sem þarf að kveikja, oþh.
Skráningarferlið með iButton-skráningarstöð virkar á eftirfarandi hátt:
- Notandi setur iButton-hnappinn sinn í sæti iButton-lesara á skráningarstöðinni. Hnappurinn er eyrnamerktur viðkomandi notanda.
- Skráningarstöðin skynjar lesturinn og sendir streng með auðkenni bæði lesara og hnapps á miðlægan skráningarþjón.
- Skráningarþjónninn skráir atvikið og sendir jákvætt svar tilbaka ef heimild er til staðar fyrir viðkomandi notanda og viðkomandi lesari er virkur. Lesari sýnir grænt ljós ef svar er jákvætt en rautt ljós ef svar er neikvætt.
Þú ert hér: Forsíða » Vörur » iButton skráningarstöðvar

