Um Leiðir verkfræðistofu ehf.

Leiðir verkfræðistofa ehf. er lausnafyrirtæki með aðaláherslu á sjálfvirka skráningu.

Leiðir selja og þjónusta ólíkar tölvulausnir á mörgum sviðum. Helst ber að nefna:

  • Bílatölvur, snertiskjái, baksýnismyndavélar og fylgihluti.
  • Snertiskjátölvur með vatnsheldum snertiskjá framleiddar af Leiðum. Dæmi um notkunarsvið er blautt umhverfi í fiskvinnslu og bílaísetningar.
  • Pökkunarvogir fyrir saltfiskpökkun. Notendur voru Vísir í Grindavík, Búlandstindur á Djúpavogi, Fjölnir á Þingeyri og SÍF í Fornubúðum, Hafnarfirði.
  • Framleiðslubókhald sem notað var af Vísi í Grindavík.
  • Vogir fyrir gaffallyftara frá Ravas .
  • Vogir fyrir hjólaskóflur og krana frá Tamtron (dæmi um notanda eru Íslenskir Aðalverktakar).
  • Upplýsingastanda frá Power-Kiosk.
  • Hitarita, Thermotracer til að skrá hitaferla vöru svo sem sjávarfangs.
  • Örmerkingar fiskikerja
  • Sorphirðuskráningarkerfi frá Botek. Notendur Reykjavíkurborg og Gámaþjónustan.
  • Móttökukerfi fyrir sorpmóttökustöðvar. Notandi er Sorpurðun Vesturlands í Fíflholti á Mýrum. Einnig þjónusta Leiðir móttökukerfi Sorpu í Gufunesi og Álfsnesi.

Fleira mætti nefna, þótt fyrirtækið sé ungt skartar það árangursríkum ferli þar sem ánægðir viðskiptavinir eru í aðalhlutverki.

Starfsmenn Leiða eru:

Magnús Þór Karlsson, Framkvæmdastjórn, vöruþróun og hugbúnaðargerð. Netfang: magnus hjá leidir.is

Stefán Birnir Sverrisson, hugbúnaðargerð, þjónusta. Netfang: stefan hjá leidir.is

Ingibjörg Ásta Rúnarsdóttir, hugbúnaðargerð, þjónusta. Netfang: inga hjá leidir.is

Hallbjörn Magnússon, sala, þjónusta. Netfang: halli hjá leidir.is

Leiðir ehf eru til húsa að Grensásvegi 3, 108 Reykjavík.



Þú ert hér: Forsíða » Um Leiðir verkfræðistofu ehf.

Leiðir Verkfræðistofa ehf | Grensásvegi 3 | 108 Reykjavík | Sími: 568 8600 | Fax: 568 8601 | Netfang: leidir@leidir.is