Leiðir ehf hefur lokið uppsetningu skráningarkerfisins Snertivigtun hjá Malbikunarstöðinni Hlaðbæ Colas. Með Snertivigtun geta bílstjórar aðstoðarlaust skráð sig inn og út af svæði, valið efni, verk ofl. beint á snertiskjá án þess að stíga út úr bílnum. Kerfið man þyngd bílsins þannig að einungis þarf að vigta einu sinni í hverri ferð. Hlaðbær Colas nær fram miklum sparnaði bæði í tíma og með aukinni nákvæmni með Snertivigtun. Leiðir ehf óskar forsvarsmönnum og starfsmönnum Hlaðbæ Colas til hamingju með kerfið. Nánari umfjöllun um Snertivigtun hjá Malbikunarstöðinni Hlaðbæ Colas má sjá hér.
Leiðir ehf hefur í samstarfi við Zeus Web Works ehf stofnað Ferðaþing ehf sem rekur Markaðstorg fyrir ferðaþjónustuna. Bæði söluaðila og ferðaþjónustu-birgja. Markaðstorgið byggir á bókunarkerfinu ODIN sem Zeus Web Works ehf hefur þróað og er m.a. í notkun hjá Ferðaskrifstofu Íslands. Markaðstorgið tengir saman framboð margra birgja og veitir því áfram til margra söluaðila. Allir söluaðilar geta selt frá öllum birgjum og birgjar geta jafnframt selt frá öðrum birgjum. Nýráðinn framkvæmdastjóri Ferðaþings er Ásgeir G. Bjarnason. Meiri upplýsingar um Ferðaþing má fá á heimasíðu fyrirtækisins Ferdathing.is.
Leiðir ehf hefur afhent Sorpu Handgreiðslutæki með sölukerfi sérhönnuðu fyrir þarfir Sorpu. Handgreiðslutækið flýtir fyrir afgreiðslu og stóreykur þjónustustig á móttökustöðvum Sorpu. Sölukerfið er þróað í samstarfi við sprotafyrirtækið Controlant. Umfjöllun um Handgreiðslutækin má sjá hér.

Sorpbrennslan Funi á Ísafirði kaupir Scanvægt vog ásamt Vigtarverði. Vogin var sett upp nú í sumar á einungis tveim dögum
Vogin er framleidd úr forsteyptum einingum sem lagðar eru á sléttað undirlag þannig að ekki er þörf á að steypa undirstöður á staðnum. Vogina má stækka eða flytja án þess að nokkrum verðmætum sé fórnað.
Kynntu þér nánari upplýsingar um Scanvægt vogina og alla uppsetningarsöguna.
Við óskum Sorpbrennslunni Funa til hamingju með nýju vogina.
Starfsmenn Leiða hafa verið önnum kafnir undanfarna daga við að flytja starfsemi fyrirtækisins í nýja aðstöðu í húsnæði Kjaran við Síðumúla 14. 
Leiðir ehf deila nú húsnæði með ND á Íslandi ehf sem er framleiðandi SAGA ökuritans.
Tilkoma flutninganna er einmitt nýtilkomið samstarf Leiða ehf og ND á Íslandi ehf.
Við bjóðum viðskiptavini okkar velkomna í nýju aðstöðuna okkar að Síðumúla 14.
Milli jóla og nýárs settum við RAVAS RCS lyftaravog í lyftara hjá Rekstrarvörum.
Vogin er einungis tengd inn á glussakerfi lyftarans og er því í senn ódýr og einföld í uppsetningu.
Vogin er einföld í notkun og sýnir vigtina á skjá hjá ökumanni. Hægt er að láta vogina tara vigtina sjálfkrafa sem þýðir að hún dregur frá auka þyngd s.s. bretti.
Myndin sýnir lyftarann hjá Rekstrarvörum með vogina í notkun.
Leiðir var með vel heppnaða sýningu á Björgun 2006, ráðstefnu Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem haldin var 20-22 okt.
Á sýningunni kynntum við Bílatölvu-línu Leiða sem samanstendur af PC tölvum sérhönnuðum fyrir bílaísetningar ásamt snertiskjám og fleiri fylgihlutum sem eiga við s.s. baksýnismyndavélar, mjúk lyklaborð, sjónvarpsmóttakarar o.m.fl.
Viðtökur voru frábærar og mikill áhugi meðal gesta
Myndin hér fyrir neðan sýnir helsta búnaðinn sem felst í Bílatölvu-línunni ásamt ágripi á þeim gríðarlegu möguleikum sem bíltölvurnar bjóða uppá.
Frekari upplýsingar um vörur í Bílatölvu-línunni er að finna hér á vefsíðunni.
Leiðir hafa samið við Landsbjörg um sölu á bílatölvum til aðildarsveita Landsbjargar.

Landsbjörg hefur látið gera ferilvöktunarkerfi sem gerir aðgerðastjórn leita kleift að fylgjast með staðsetningu og akstursferlum björgunartækja. Einnig er hægt að senda björgunarmönnum ferla, sem þeir nota síðan til rötunar.
Nú er lokið ísetningu tölvubúnaðar í bíla 7 björgunarsveita og fleiri eru í farvatninu.
Verkefnið verður rækilega kynnt á ráðstefnunni Björgun 20 – 22 október. Tengiliður Landsbjargar í verkefni þessu er Gunnar Stefánsson.

Fiskmarkaður Suðurnesja hefur tekið í notkun löggilta gaffalvog sem skilar mikilli hagræðingu í starfsemi þeirra.
Vogin sem er af gerðinni RAVAS RVW2500 og seld af Véladeild Heklu er felld inn í gaflana og er léttari en hefðbundnir gafflar. Vogarskjárinn er staðsettur hjá ökumanni.
Lyftarinn er búinn snúningabúnaði sem truflar ekki virknina því að vogin er útbúin hallaskynjara sem er forsenda fyrir löggildingu og að tryggt sé að vogin sýni ávallt rétta vigt.
Við óskum Fiskmarkaði Suðurnesja til hamingju með nýju vogina.


Í dag var löggild vog sem er í hjólaskóflu Íslenskra Aðalverktaka sem notuð er við Lambafell sem er við Þrengslaafleggjarann.
Vogin er notuð til að vigta efni sem selt er úr námunni. Hver skóflufylling er viktuð fyrir sig og þegar bíll hefur verið fylltur þá prentar vogin afgreiðslukvittun sem tilgreinir magn í tonnum og rúmmetrum, viðskiptavin, tegund efnis, verknúmer og bíl eftir því sem á við. Upplýsingarnar eru síðan sendar með sérstöku GSM símtæki til skrifstofu og beint í reikningagerð IAV.
Ávinningurinn er sá að farið er að kaupalögum, einn starfsmaður kemur að afgreiðslu og gögnin fara milliliðalaust í reikningshald.
Vogin er finnsk, af gerðinni Tamtron PKV 300R.
Við óskum Íslenskum Aðalverktökum til hamingju með þennan merka áfanga og væntumst góðs árangurs af þessu framtaki.








