11. Jan 2011

Nýjar höfuðstöðvar

Leiðir verkfræðistofa hefur flutt sig um set. Plássleysið var farið að segja til sín og því var tekin ákvörðun um að leita að nýju og hentugu húsnæði.
Leiðir hafa því flutt að Grensásvegi 3, 108 Reykjavík.

Undanfarin ár höfum við deilt húsnæði með SAGAsystem sem við höfum átt náið og gott samstarf með. Við höldum áfram á þeim grunni og deilum enn húsnæði með þeim. Bráðlega munu einnig bætast við tvö önnur fyrirtæki í rýmið á Grensásvegi 3. Það eru Zeus web works ehf og Ferðaþing ehf en Ferðaþing er í sameiginlegri eigu Leiða Verkfræðistofu ehf og Zeus web works ehf.

Það má því segja að brátt verði sannkallað fyrirtækjasetur að Grensásvegi 3.

<<

>>

Leiðir Verkfræðistofa ehf | Grensásvegi 3 | 108 Reykjavík | Sími: 568 8600 | Fax: 568 8601 | Netfang: leidir@leidir.is