16. Sep 2010
Leiðir er nú skráð verkfræðistofa
Leiðir ehf hefur verið skráð sem verkfræðistofa. Meginverkefni fyrirtækisins eru að hanna og þróa lausnir fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Sjálfvirk skráning upplýsinga er meginviðfangsefni stofunnar. Ráðgjafahlutverk og hönnun ásamt hugbúnaðargerð eru því meginkjarni þeirrar þjónustu sem Verkfræðistofan Leiðir býður viðskiptavinum sínum. Nú sem áður mun stofan bjóða hagkvæmar lausnir sem leiða til aukins öryggis í meðferð upplýsinga auk hagræðingar og sparnaðar í vinnulagi viðskiptavina sinna.
Sem hluti af þessu ferli hefur félagið fengið nýtt nafn og heitir nú Leiðir Verkfræðistofa ehf.
