Sorpa endurnýjar afgreiðslukerfi
Leiðir ehf hefur lokið endurgerð afgreiðslukerfis Sorpu. Í stað strikamerkjakorta not viðskiptavinir nú örmerkjakort til að skrá komu sína á svæðið. Bílar sem aka um samtals 4 vogir vigtast sjálfvirkt á inn- og útleið og eru skráningarnar meðhöndlaðar í Axapta hugbúnaði sem prentar reikninga og sinnir innheimtu. Myndavélar vista myndir af vigtunum og starfsmenn nota kallkerfi til að aðstoða við afgreiðsluna. Verkið hefur tekið rúmt ár í vinnslu en skipt var um allan vélbúnað og bætt við skráningarstöðvum. Verkið var unnið í samstarfi við HugAx hugbúnaðarhús. Endurnýjun afgreiðslu- og skráningakerfis Sorpu er án efa stærsta verk Leiða frá upphafi en þess má geta að Leiðir hefur verið þjónustuaðili Sorpu um árabil. Leiðir ehf óskar Sorpu til hamingju með glæsilegt kerfi. Umfjöllun um Sorpukerfið má sjá hér.

