10. Mar 2010

Nýr vefur Leiða ehf

Nú er kominn í loftið nýr og enn betri vefur Leiða ehf.

Fyrri vefsíða fyrirtækisins leit dagsins ljós árið 2004 og síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað og blómstrar nú sem aldrei fyrr og hafa umsvif þess aldrei verið meiri en nú í ársbyrjun 2010.

Í ljósi þess hve tækninni hefur fleygt fram undanfarin ár og mikilvægi vefsins aukist í starfi fyrirtækisins, var ljóst að breytinga var þörf. Því er það okkur sönn ánægja að hleypa af stokkunum nýrri og glæsilegri vefsíðu. Er það von okkar, að nýi vefurinn nýtist enn betur en sá gamli og þjóni þörfum okkar viðskiptavina eins og best verður á kosið.

<<

>>

Leiðir Verkfræðistofa ehf | Grensásvegi 3 | 108 Reykjavík | Sími: 568 8600 | Fax: 568 8601 | Netfang: leidir@leidir.is